Ökumenn kvarta undan dularfullum blæðingum

Ökumenn hafa kvartað undan því að farið sé að blæða úr klæðingu vega um landið norðvestanvert. Í umfjöllun Mbl.is um málið kemur fram að Vegagerðin sé ráðalaus við þessu fyrirbrigði sem á sér stað á bundnu slitlagi eða klæðingu á landsbyggðinni.

Þegar olíu blæðir úr slitlagi eða klæðingum hleðst hún á bíldekk smátt og smátt þar til hún getur breyst í köggla sem losna síðan af. Menn verði ekki varir við þetta nema þegar þeir sjá að þetta hafi breyst í köggla sem dreifist um veginn og breytist í litlar klessur. Einhverjar hugmyndir eru uppi hjá Vegagerðinni um að þetta væri af völdum efna sem hefðu verið borin ofan í veginn.

„Þetta skemmir kannski ekkert rosalega mikið En það flýtur stundum svona bik á yfirborðinu og þetta límist á dekkin og dettur svo af. Þetta slítur auðvitað slitlaginu en það er ekki eins og það  komi holur,“ segir Magnús Valur Jóhannsson, svæðisstjóri vestursvæðis hjá Vegagerðinni í samtali við Mbl.is.

Við höfum aldrei komist að því hvers vegna þetta gerist,“ segir Magnús og bætir við að þetta geti gerst við ákveðnar aðstæður, t.d. þegar það hlýni snögglega. Hiti og raki séu áhrifaþættir.

Ástandið slæmt víða í Húnavatnssýslum

Jón Ragnar Ólafsson, bílstjóri hjá Guðmundi Tyrfingssyni, hafði samband við Mbl.is og kvartaði undan ástandinu. „Maður bara rífur upp klæðinguna. Þetta festist á dekkjunum og fer upp í hjólaskálarnar. Síðan er þetta að skjótast af dekkjunum hér og þar,“ segir hann.

Jón Ragnar var á ferðinni á um þjóðveg 1 sl. laugardag frá Víðigerði að Blönduósi og sagði ástandið þar vera slæmt og að klæðingin valdi ökumönnum vandræðum. Þá var hann einnig á ferðinni frá Víðidalsá að Staðarskála í gær og sagði hann ástandið vera eins á þeim kafla.

Lögreglunni á Blönduósi hefur borist samskonar kvartanir frá fleiri ökumönnum varðandi ástand þjóðvegarins í Hrútafirði og í Langadal.

Heimildir: Mbl.is

 

Fleiri fréttir