Ólafur Ragnar fékk yfir 57% atkvæða í Norðvesturkjördæmi
Ólafur Ragnar Grímsson fékk samtals 52,78% atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í gær. Þóra Arnórsdóttir fékk 33,16% atkvæða og Ari Trausti Guðmundsson 8,64% en aðrir minna. Það er því ljóst að Ólafur Ragnar mun sitja á Bessastöðum sitt fimmta kjörtímabil en enginn forseti hefur hingað til setið sem forseti í meira en 16 ár og telst þetta því Íslandsmet hjá Ólafi.
Samkvæmt lokatölum úr Norðvesturkjördæmi fékk Ólafur Ragnar Grímsson rúm 57% atkvæða og Þóra Arnórsdóttir rúmlega 28,5%. Ari Trausti Guðmundsson fékk tæplega 7,2%. Þá hlaut Herdís Þorgeirsdóttir rúmlega 2,1%, Hannes Bjarnason rúm 2% og Andrea J. Ólafsdóttir tæplega 1,2%.
Í Norðvesturkjördæmi voru auðir seðlar tæplega 1,7% og ógildir tæp 0,2%. Kjörsóknin var 71,7%.
Skagfirðingurinn Hannes Bjarnason bauð sig sem kunnugt er fram til forseta en hafði ekki erindi sem erfiði. Hannes hlaut 0,98% atkvæða en getur engu að síður borið höfuðið hátt, kom vel fyrir og bauð af sér góðan þokka. Hann var með sína kosningavöku í Miðgarði og á Landsmóti hestamanna í Víðidal.