Ólafur Þór tekur sæti Guðfríðar Lilju
Ólafur Þór Gunnarsson tekur sæti Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur á Alþingi á nýju ári en Guðfríður Lilja lætur af þingmennsku frá og með áramótum. Guðfríður Lilja sagði formlega af sér þingmennsku um hádegisbilið í dag með bréfi til forseta Alþingis um leið og hún óskaði þingheimi öllum heilla á nýju ári.
Guðfríður Lilja hefur verið formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis frá haustdögum 2011 en var áður formaður þingflokks VG og formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis. Hún hefur jafnframt setið í utanríkismálanefnd og allsherjar- og menntamálanefnd þingsins.