Óli og Palli gera myndband.

Blaðamenn Feykis.is þeir Páll Friðriksson og Óli Arnar stefndu fyrr í vetur á heimsfrægð eða dauða, skunduðu í stúdíó þar sem Páll hafði samið lag við kaffistofuljóð Óla Arnars. Heimsfrægðin kom ekki jafn auðveldlega og þeir félagar höfðu vonað og því var haft samband vð Svein, vefhönnuð Feykis.is, og hann fenginn í að búa til myndband. Þar sem ristjóri er laglaus og hæfileikalaus með öllu á tónlistarsviðinu kom í hans hlut að misnota aðstöðu okkar og setja lagið í spilun hér inni.

http://www.youtube.com/watch?v=HYcc5KoU6jg

Ef þið skiljið ekki textann sem þið gerið örugglega ekki þá er hægt að lesa hann hér inni.

Gamli gamli

Þegar dagarnir fara að lengjast á grænmetið geggjað’ að gildna í görðunum,

þá hitinn hann hækkar og nartar í rassinn á sköflum í skuggsælum skörðunum

Já sólin fer kollhnís og hleypur í skarðið í fjörlegum leik milli skýjanna

og göturnar fyllast af gleði og söng sumarfríanna.

En það er ekki aldeilis allt með felldu í kaffistofu hinna klikkuðu kellinga.

Þær kvarta og kveina og fílu ei leyna vegna kexmilsn’ og fitugra fellinga.

Og þó að Sveinar og Jóar og Pallar og Ólar séu leikandi léttir og skarpir og skírir,

eru gullur og gúrkur og bananar blíðir of rýrir.

Þá mætir gamli – með gítarinn.

Þá mætir gamli gamli – með gamla gítarinn sinn.

Kappinn rokkar og rólar, í Megasinn hjólar,

já, hvað er til ráða ef þær feitt vilja fáða?

Ég létt slæ á strengi, Stuðmennina flengi

og stramma upp stöffið, í bresti ber blöffið.

Gamli er enginn Villi, bara helvítis snilli.

Aldrei hann strumpast. Partí upp pumpast

þegar gamli -  gamli spilar - spilar á gítarinn – gítarinn sinn.

Ó Guð minn góður, hann verður bandóður, ef kaffið endar í tjúllaðri tvíræðni.

En hvað er nú betra’ en að hlæja og neita að núllstilla lífið með neikvæðni?

Á meðan sólin fer kollhnís og hleypur í skarðið í fjörlegum leik milli skýjanna

er langbesta ráðið við fýlunni barasta’ að flýjana!

Þá mætir gamli – með gítarinn.

Þá mætir gamli gamli – með gamla gítarinn sinn.

Kappinn rokkar og rólar, í Megasinn hjólar,

já, hvað er til ráða ef þær feitt vilja fáða?

Ég létt slæ á strengi, Stuðmennina flengi

og stramma upp stöffið, í bresti ber blöffið.

Gamli er ekki Villi, bara helvítis snilli

Aldrei hann strumpast. Parti upp pumpast

þegar gamli -  gamli spilar - spilar á gítarinn – gítarinn sinn.

Fleiri fréttir