Olíutankar fjarlægðir af hafnarsvæðinu á Blönduósi
Gamlir olíutankar sem stóðu við hafnarsvæðið á Blönduósi voru fjarlægðir í síðustu viku en tankarnir höfðu staðið þar í nokkra áratugi.
Greint er frá því á huni.is að langt er liðið síðan tankarnir voru síðast í notkun. Hér áður fyrr lögðu olíuskip þar við bryggju og olíu var dælt í tankana um leiðslur sem lágu meðfram bryggjunni. Nú til dags er allt eldsneyti hins vegar keyrt landshornanna á milli og því ekki lengur þörf á olíutönkum hér og þar um landið.