Önnur helgi í þorra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
31.01.2014
kl. 11.47
Nú er að hefjast önnur helgi í þorra og er Feyki kunnugt um fjögur þorrablót á Norðurlandi vestra þessa helgi, þrjú í Skagafirði og eitt í Vestur-Húnavatnssýslu. Feykir hyggst birta myndir af sem flestum þorrablótum og biðlar því til lesenda um að senda svipmyndir af sínu blóti.
Þorrablótin þessa helgina eru eftirfarandi:
Þorrablót Skagfirðinga 60+ í félagsheimilinu Ljósheimum föstudaginn 31. janúar
Þorrablót fyrrum Hofshrepps í félagsheimilinu á Hofsósi laugardaginn 1. febrúar
Þorrablót Seyluhrepps í Miðgarði laugardaginn 1. febrúar
Þorrablót Víðdælinga í Víðihlíð laugardaginn 1. febrúar