Opið á skíðasvæðið í Tindastólnum á morgun

Svona var staðan í Stólnum í dag. Allt að gerast! MYND: HELGA
Svona var staðan í Stólnum í dag. Allt að gerast! MYND: HELGA

Því var laumað að Feyki að skíðasvæðið í Tindastóli yrði mögulega opið um helgina og því voru sendar spurningar á Gunnar Smára og Helgu Daníels sem ráða ríkjum í Tindastóli ásamt Jóni Bjarna og verður pottþétt tekið vel á móti gestum þegar aðstæður leyfa. Og það er staðreynd; það verður frítt í fjallið á morgun (laugardag) og því ekki vit í öðru en finna skíðin og gera allt klárt fyrir góðan dag í Tindastólnum.

„Það er sæmilega mikill snjór, nógu mikill til að opna um helgina en næsta vika lítur ekki vel út veðurspárlega,“ sagði Gunnar Smári Reynaldsson. Það er því um að gera að nota tækifærið meðan það gefst.

„Skíðadeildin rekur skíðasvæðið þennan vetur,“ sagði Helga Daníels. „Við gerðum samning við Gunnar Smára um að sjá um allt sem tengist troðslu, brekkum og lyftum og viðhaldi á þessu öllu.“

Hún segir skíðadeild Tindastóls ætla að bjóða öllum skíðaáhugamönnum að koma og njóta dagsins á morgun – alveg ókeypis! „Brekkurnar eru að vísu ekki orðnar alveg eins og við viljum hafa þær og enn er smá vinna fram undan en það er samt hægt að renna sér og njóta þess að komast loksins á skíði! Við viljum því bjóða ykkur að koma, njóta útiverunnar og taka fyrstu sveiflurnar með okkur. Hlökkum til að sjá ykkur í brekkunum!“

Drög að rekstrarfyrirkomulagi skíðasvæðis samþykkt í byggðarráði

Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar 12. nóvember voru lögð fyrir drög að samningi um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli Skagafjarðar og skíðadeildar Tindastóls. Skíðadeildin óskaði eftir að fjárframlag vegna samningsins yrði greitt út á 7 mánuðum í stað 12 mánaða eins og lagt var upp með í fyrri drögum. Í fyrirliggjandi drögum hefur greiðslufyrirkomulag verið uppfært til samræmis við ósk skíðadeildar.

Byggðarráð samþykkti síðan á fundi 18. nóvember, með tveimur atkvæðum, fyrirliggjandi drög og fól sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins.

Fleiri fréttir