Opið fyrir styrkumsóknir

Opið er fyrir styrkumsóknir menningar-, æskulýðs- og íþróttasamtaka á Blönduósi sem hyggjast sækja um styrki vegna starfsemi sinnar fyrir árið 2012.

Samkvæmt tilkynningu frá Blönduósbæ er lögð áhersla á að við móttöku styrkja sé gerður samningur við sveitarfélagið þar sem samstarf er nánar skilgreint. Einnig þurfa styrkþegar sem þegið hafa styrki á þessu ári að skila inn stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkja. Nánari upplýsingar eru á umsóknarblaði.

Umsækjendum er bent á að eyðublöð má finna á heimasíðu Blönduóssbæjar undir „Eyðublöð/Umsókn um styrk úr bæjarsjóði“.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k. og þurfa umsóknir að berast til:

Bæjarskrifstofa
b.t. bæjarstjóra
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduósi

 

 

 

Fleiri fréttir