Opið hús af sérstöku tilefni
Nes listamiðstöð ætlar að vera með opið hús nk. mánudag, þann 18. júní, í tilefni af heimsókn bandaríska sendiherrans á Skagaströnd þann daginn.
Gestir eru boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á milli kl. 12:30 – 14:30 en þar verður hægt að hitta listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir.