Opið hús hjá ferðaþjónustu bændum sunnudaginn 9. júní

Í tilefni útgáfu bæklingsins „Upp í sveit“ ætla fjölmargir bæir innan Ferðaþjónustu bænda að hafa opið hús þann 9. júní kl.13.00 - 17.00. Gestir munu geta skoðað aðstöðuna á bæjunum, sótt nýja bæklinginn, fengið kaffisopa, spjallað við bændur og upplifað einstaka sveitastemningu.  

Það verður margt í boði fyrir alla aldurshópa í öllum landshlutum. Til dæmis verður hægt að gæða sér á ljúffengum heimabakstri og öðrum forvitnilegum afurðum úr sveitinni, heilsa upp á dýrin á bænum, skoða fjós, taka þátt í leikjum eins og skeifukastskeppni og trölla parís, njóta lifandi tónlistar, kynna sér tóvinnu og fræðast um ylrækt, svo eitthvað sé nefnt.

Bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum og hvítum blöðrum við veginn.

Nánari upplýsingar og lista yfir þá bæi sem bjóða heim þann 9. júní í hverjum landshluta má finna á vefsíðu Ferðaþjónustu bænda www.sveit.is.

Norðanátt segir frá þessu.

Fleiri fréttir