Opið hús hjá Nes listamiðstöð
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
27.09.2014
kl. 12.27
Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús á morgun, sunnudaginn 28. september, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 15 og 18.
Þar verður hægt að hitta þá listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.