Opið hús í Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús næstkomandi föstudag, 20. júní, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 18 og 20.

Þar verður hægt að hitta þá listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.

 

Fleiri fréttir