Opið hús í Nesi listamiðstöð
Í kvöld klukkan 20 verður kanadíski listamaðurinn Christie Kirchner með opið hús í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Christie hefur dvalið á Skagaströnd síðastliðin mánuð. Verk hennar eru teikningar þar sem hún sækir innblástur í landslag og sögu Skagastrandar.
Hún heillaðist strax af sögunni af Þórdísi spákonu og hvernig sagt er að hún hafi greitt á sér hárið með gull kambi í hlíðum Spákonufells. Verkin kallar hún „Secret futures“.