Opið í Nes listamiðstöð í kvöld
Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínar í lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni. Í dag verður listamiðstöðin opin gestum og gangandi frá 17 - 20
Verður á opinni vinnustofu öllum sem áhuga hafa að koma boðið að skoða listaverk í vinnslu og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagatrönd. Þessa stundina dvelja sjö listamenn frá þremur heimsálfum í Listamiðstöðinni á Skagaströnd.
