Opinn fundur með Árna Páli
Opinn fundur verður haldinn með Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, í sal verkalýðsfélagsins Samstöðu á Blönduósi þriðjudaginn 19. mars kl. 20. Samkvæmt fréttatilkynningu verður alvöru gjaldmiðill, húsnæðisöryggi og heilbrigð forgangsröðun á meðal umræðuefna á fundinum.
Árni Páll hefur fundað víða um land þessar vikurnar; í Grindavík, á Akranesi, Bifröst, í Kópavogi, Mosfellsbæ, Garðabæ og Reykjavík. Nú gefur hann í og heldur sjö opna fundi á átta dögum á Selfossi, Hafnarfirði, Blönduósi, Akureyri, Stykkishólmi, Sandgerði og í Fjarðabyggð.
„Fundirnir eru vel sóttir og greinilegt að það er eftirspurn eftir skemmtilegum og uppbyggilegum umræðum um samfélagið og framtíðarsýn fyrir land og þjóð,“ segir í fréttatilkynningu.
Samfylkingin hvetur sem flesta til að mæta á morgun þriðjudag kl. 20.00 í Samstöðusalinn Blönduósi og taka þátt í skemmtilegum og uppbyggilegum umræðum um samfélagið og framtíðarsýn fyrir land og þjóð. Allir eru velkomnir.