Opinn fundur SA á Sauðárkróki
Haustfundaröð Samtaka atvinnulífsins um Ísland hefst í þessari viku og verður opinn fundur SA á Sauðárkróki haldinn á Kaffi Krók kl. 16.30-18 miðvikudaginn 20. september. Í tilkynningu frá samtökunum segir að boðið verði upp á síðdegiskaffi og krassandi umræður. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja, bæjarfulltrúa og starfsmenn sveitarfélaga og horfa saman fram á veginn
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði. Hagvöxtur er mikill, gengi krónunnar sterkt og verðbólga lág en það eru blikur á lofti. Niðurstöður kjarasamninga í vetur munu ráða miklu um lífskjör Íslendinga á næstu misserum.
Þá verður einnig fjallað um á hverju framtíðar hagvöxtur Íslands mun byggja.
Að loknum erindum fara fram umræður og fyrirspurnir.