Opinn fundur um IPA styrki

SSNV boðar til opins samráðsfundar um IPA styrki í Miðgarði, Varmahlíð þriðjudaginn 4. september kl 13:00-17:00. Hagsmunaaðilum úr stofnunum og fyrirtækjum á svæðinu er boðið sérstaklega en að öðru leyti er fundurinn opinn almenningi. Í umsóknarferli IPA styrkja er gert ráð fyrir víðtæku samráði við hagsmunaaðilaheima í héraði við val og mótun verkefna.

IPA styrkir (e. Instrumentfor Pre-Accession) standa til boða handa þeim ríkjum sem sótt hafa um aðild að Evrópusambandinu. Markmiðið með IPA styrkjum er að aðstoða umsóknarríki við að aðlaga m.a stjórnsýslu og svæðasamvinnu að reglum Evrópusambandsins komi til aðildar. Sérstaklega er horft til að undirbúa þátttöku í sjóðum og áætlunum ESB þá sérstaklega stoðkerfissjóðum (e. Structural funds).

Vorið 2012 samþykkti Alþingi rammasamning við framkvæmdastjórn ESB auk breytinga á skattalögum vegna svokallaðra IPA styrkja (e. Instrument for Pre-Accession) en IPA styrkir standa til boða til handa þeim ríkjum sem sótt hafa um aðild að Evrópusambandinu.

Í framhaldi af samþykkt Alþingis samþykkti meirihluti stjórnar SSNV á fundi þann 19. júní 2012 að vinna að umsóknum um IPA styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi vestra. Ráðgert er að styrkir að upp að upphæð 8-10 milljónir evra verði auglýstir í ágúst/september 2012. Reiknað er með að margar umsóknir berist frá Íslandi og er áætlað að 15 – 20 verkefni hljóti styrk. Stefnt er að því að verkefni geti hafist í upphafi ársins 2013.

Umsóknirnar taka til tveggja sjóða. Annars vegar ERDF (European Regional Development Fund) sem styrkir fjárfestingar í innviðum svæða. Áætlað er að styrkur til hvers verkefnis nemi 200-500.000 Evrum.

Alltaf er gengið út frá 20% framlagi til viðbótar frá heimamönnum (umsóknaraðila). Hins vegar er félagsmálasjóðurinn ESD (European Social Fund) sem styrkir fjárfestingu í mannauði. Styrkja má verkefni um allt að eina milljón Evra. Gert er ráð fyrir að við bætist 20% framlag heimamanna.

Leitað verður að verkefnum sem eru þess eðlis að sem flestir í landshlutanum njóti góðs af þeim. Umsóknir þurfa annars vegar að falla að stefnu innanlands, þ.e. Íslandi 2020 (sóknaráætlun) og hins vegar stefnu ESB. Um er að ræða óafturkræfa styrki, m.ö.o. óháða aðild að ESB.

Skráningar sendist á netfangið ssnv@ssnv.is eða í síma 455-2515. Skráningarfrestur er til  2. september.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir