Opnað fyrir umsóknir í Norðurstrandarleið

Heimskautagerðið er einn þeirra staða við norðurströndina sem vert er að sækja heim. Mynd: Northiceland.is
Heimskautagerðið er einn þeirra staða við norðurströndina sem vert er að sækja heim. Mynd: Northiceland.is

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu fyrirtækja í Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið en ferðamannaleiðin verður formlega opnuð 8. júní næstkomandi á Degi hafsins. Arctic Coast Way er nýtt og spennandi verkefni í ferðaþjónustu og er því ætlað að skapa aukið aðdráttarafl á Norðurlandi og kynna landshlutann sem einstakan áfangastað. 

Ferðamannavegir þekkjast í ferðaþjónustu víða um heim, sem tæki til þess að beina ferðamönnum eftir ákveðnum leiðum um skilgreind svæði. Norðurstrandarleið fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri. 

Til þess að taka þátt í verkefninu þurfa ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og þorpin eða bæirnir á leiðinni að uppfylla ákveðin skilyrði, sem byggjast meðal annars að miklu leyti á staðsetningu. Þá er grunnforsenda fyrir skráningu í ACW að viðkomandi fyrirtæki sé skráð í samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Skjal um þátttökuskilyrði og umsóknareyðublað er að finna á vef Markaðsstofu Norðurlan

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir