Opnun Þórsstofu í Kvennaskólanum á Blönduósi
Þórsstofa – Íshafsleiðin til Kína var formlega opnuð í Kvennaskólanum á Blönduósi sl. sunnudag. Þórsstofa er vinnustofa og fundarsalur sem varðveitir skjöl, bækur, muni og myndir sem dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur áhafnaði Háskólasetrinu á Blönduósi.
Fram kemur á vefmiðlinum huni.is að fjölmenni hafi verið við opnuna og tók Þór sjálfur til máls eftir að Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri, hafði opnað Þórsstofu formlega. Þeir sem einnig tóku til máls voru Ágúst Þór Bragason forseti bæjarstjórnar, Skúli Skúlason rektor á Hólum og Katharina Schneider forstöðumaður Hafíssetursins. Catharine Chambers fjallaði um rannsóknir sínar við Háskólasetrið á Blönduósi og Bjarni Kristófer Kristjánsson fór yfir rannsóknir við fiskeldis- og fiskalíffræðideild Hólaskóla.
Vinnustofan mun vera aðgengileg fræðimönnum, nemendum og öllum þeim sem áhuga hafa á náttúru og mannlífi norðurslóða.