Opnunarholl Blöndu með 10 laxa

Þokkaleg veiði var hjá opnunarhollinu í Blöndu sem lauk veiðum á föstudaginn og endaði með tíu laxa. Það þykir viðunandi miðað við erfið skilyrði. Í opnun Blöndu í fyrra veiddust yfir 20 laxar. Árið 2011 voru þeir 11 en árið 2010 veiddust 42 laxar og var sú opnun líklegast sú besta frá upphafi. Veitt er á fjórar stangir á neðsta svæðinu í opnun.

Á vef Lax-á.is segir að það sé jákvætt hvað allir laxarnir séu vel í holdum og flestir í kringum 85 sentímetrar á lengd. Vegna mikilla leysinga hefur áin verið lituð og vatnsmikil en um helgina sjatnaði í henni og brúni liturinn virðist vera á undanhaldi.

Einnig kemur fram að talsvert er um lausar stangir í Blöndu næstu tíu dagana og eru einhverjar þeirra þegar komnar á tilboð hjá Lax-Á en skoða má verð og tilboðin á söluvef þeirra www.agn.is.

Fleiri fréttir