Orkudrykkir geta verið stórhættulegir börnum
Dv.is greinir frá því að svokallaðir orkudrykkir eru of mikið notaðir og geta verið stórhættulegir heilsu barna og unglinga. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem birtist í læknatímaritinu Pediatrics.
Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að efni sem orkudrykkir innihalda, þar á meðal koffein, geti meðal annars valdið hjartaslögum og skyndidauða. Þessi sömu efni geti einnig valdið öðrum – ekki eins alvarlegum – einkennum eins og niðurgangi og ógleði. Þá er lagt til að það verði fært í lög að banna börnum að kaupa orkudrykki, rétt eins og áfengi og tóbak.
„Við mælum gegn því að börn og unglingar neyti þessara drykkja,“ segir Dr. Steven Lipshultz, barnalæknir við háskólann í Miami, einn þeirra lækna sem samdi skýrsluna. Var meðal annars notast við skráð tilfelli þar sem talið er nær fullvíst að börn hafi veikst alvarlega eftir notkun orkudrykkja. Þá var notast við rannsóknir á áhrifum orkudrykkja á börn og unglinga.
Orkudrykkir, drykkir sem innihalda mikið magn koffíns og annarra örvandi efna, komu fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um tuttugu árum og hafa vinsældir þeirra aukist gríðarlega undanfarin ár. Vitnað er í rannsókn þar sem fram kemur að þriðjungur bandarískra unglinga neyti orkudrykkja reglulega. Þá kemur fram að margar tegundir innihaldi fimmfalt magn þess koffíns sem er að finna í venjulegum gosdrykkjum. Þá er eindregið varað við notkun orkudrykkja sem einnig innihalda áfengi.
Hinn 18 ára gamli Dakota Sailor er meðal þeirra sem farið hafa illa út úr neyslu orkudrykkja. Hann fékk hjartaáfall eftir að hafa drukkið tvo stóra orkudrykki, tegund sem hann hafði aldrei prófað áður. Læknirinn hans telur að koffínmagninu sem hann innbyrti sé um að kenna.
Þrátt fyrir að margt bendi til þess að neysla orkudrykkja sé hættuleg börnum og unglingum er það tekið fram í skýrslunni að ekki nógu margar rannsóknir séu til um áhrif orkudrykkja. Orkudrykkjaframleiðendur hafi því engin viðmið og séu nokkurn veginn með frjálsar hendur.
Loks er vitnað í tölur frá stofnun, The American Association of Poison Control Centers, sem meðal annars hefur það hlutverk að skrá eitrunartilfelli vegna orkudrykkjanotkunar. Frá því í október, þegar gagnaöflun hófst, fram í desember voru 677 tilfelli skráð. Það sem af er þessu ári hafa 331 tilfelli verið skráð.