Orkusalan ræktar skóg við Skeiðsfossvirkjun

Grænar greinar er eitt af grænum verkefnum Orkusölunnar og er fyrst og fremst hugsað til vitundarvakningar og skemmtunar og fá öll sveitarfélög landsins afhenta plöntu til gróðursetninga. Yfir þúsund plöntur gróðursettar við Skeiðsfossvirkjun.
Á heimasíðu Orkusölunnar kemur fram að á seinasta ári hafi fyrirtækið gróðursett yfir þúsund plöntur í skógi sínum við Skeiðsfossvirkjun í Fljótum og áttu góðan dag saman með starfsmönnum og þeirra fjölskyldum eftir að verkefni sumarsins kláraðist en frá því að Orkusalan var stofnuð hefur fyrirtækið ræktað skóg við Skeiðsfossvirkjun.
Grænar greinar er eitt af grænum verkefnum
Orkusölunnar, en fyrirtækið gróðursetur plöntur
til jafns við þær sem gefnar voru sveitarfélögum
í sumar. Hér hefur Eyþór Einarsson,
hreppsnefndarmaður Akrahrepps,
tekið við plöntu Orkusölunnar.
„Markmið skógræktarinnar er að rækta fjölnytjaskóg sem fellur vel að landinu, því fellur þetta verkefni vel að markmiðunum. Orkusalan setur sér háleit markmið þegar kemur að umhverfismálum og er þetta græna verkefni sumarsins, eins og árið á undan, að afhenda sveitarfélögum landsins Grænar greinar Orkusölunnar til gróðursetningar,“ segir í frétt Orkusölunnar. Ennfremur kemur fram í fréttinni að Orkusalan sé eina orkufyrirtækið á almennum markaði sem er kolefnishlutlaust.