Óskað eftir tilnefningum til samfélagsverðlauna í Húnaþingi vestra
Félagsmálaráð Húnaþings vestra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um aðila til samfélagsviðurkenninga fyrir verk sín eða störf í þágu samfélagsins. Í frétt á Húnahorninu segir að allir komi til greina, jafnt einstaklingar, fyrirtæki sem og félagasamtök sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd.
Tilnefningar skulu berast fjölskyldusviði Húnaþings vestra fyrir mánudaginn 11. ágúst næstkomandi með rökstuðningi á netfangið siggi@hunathing.is eða með bréfi í Ráðhúsið merkt: Samfélagsviðurkenning 2025.