Óskað eftir tilnefningum um Jólahús ársins á Blönduósi

Hólabraut 11 var Jólahús ársins 2018 á Blönduósi. Mynd: huni.is
Hólabraut 11 var Jólahús ársins 2018 á Blönduósi. Mynd: huni.is

Húnahornið stendur að vanda fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi líkt og gert hefur verið, með einni undantekningu þó, síðustu 18 ár. Um er að ræða samkeppni eða jólaleik um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahús. Samkeppnin um Jólahúsið 2019 verður með svipuðu sniði og síðustu ár. 

Til að taka þátt í jólaleiknum er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem finn má hér. Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2019 á Blönduósi. Samkeppnin stendur til miðnættis 30. desember og verða úrslit gerð kunn á síðasta degi ársins.

Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:

2001: Brekkubyggð 17
2002: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2004: Hlíðarbraut 13
2005: Hlíðarbraut 8
2006: Sunnubraut 3
2007: Ekkert val
2008: Hlíðarbraut 8
2009: Hlíðarbraut 4
2010: Mýrarbraut 35
2011: Melabraut 19
2012: Mýrarbraut 33
2013: Heiðarbraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2015: Skúlabraut 1
2016: Aðalgata 10
2017: Skúlabraut 22
2018: Hólabraut 11

 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir