Óskar Pétursson heiðrar Gunna Þórðar
Álftagerðisbróðirinn Óskar Pétursson hefur frá opnun Menningarhússins Hofs á Akureyri staðið fyrir söngskemmtun um páskana þar sem hinn skagfirski tenór hefur tekið á móti landþekktum listamönnum. Gestir Óskars að þessu sinni verða Egill Ólafsson, dúettinn Þú og ég, sem Helga Möller og Jóhann Helgason skipa, Harpa Björk Birgisdóttir og Hjalti Jónsson.
Í tilefni þess að Gunnars Þórðarsonar fagnaði á dögunum sjötugs afmæli sínu verða tónleikarnir tileinkaðir Gunnari og tónlist hans. Flutt verða mörg af hans þekktustu lögum og mun Gunnar sjálfur stýra glæsilegri hljómsveit sem er að mestu skipuð norðlensku tónlistarfólki. Tónleikarnir fara fram laugardaginn 4. apríl kl. 20.00 og hefur aukatónleikum verið bætt við sama dag kl. 17.00. Kynnir verður Birgir Sveinbjörnsson.