Ósköp venjulegur og góður matur

Í Feyki sem kom út í morgun eru tvær uppskriftir sem Áslaug og Vignir á Sauðárkróki bjóða upp á. Svo óheppilega vildi til að meinleg villa slæddist með frá uppskriftum síðasta blaðs þar sem boðið var upp á lax með tilbrigðum. Í uppskriftum Vignis og Áslaugar eiga engin laxaflök að vera eins og stendur í blaðinu og biðjumst við velvirðingar á mistökunum.

Rétt uppskrift er eftirfarandi.

 

Kjötbollur

  • 500gr nautahakk
  • 150g rifinn ostur
  • 150g gulrætur rifnar
  • 1-2 egg
  • 1 ½ bolli haframjöl
  • ½ -1 bolli vatn
  • salt, pipar og hvítlaksduft

Öllu blandað saman og búnar til úr þessu bollur. Við mótum þær yfirleitt allar fyrst og steikjum svo þannig að þær lokist alveg.

 

Sósa

  • 1-2dl tómatsósa
  • ¾ L vatn
  • ½ dl sinnep (sætt franskt Bahncke)
  • 1 súputeningur
  • 2 tsk púðursykur

Allt sett í pott og látið sjóða við vægan hita meðan bollurnar eru steiktar (við gerum alltaf tvöfalda uppskrift af sósu). Við berum þetta fram með spaghetti og jafnvel hvítlauksbrauði

 

Kjöt í karrý

  • 600gr beinlaust lambakjöt
  • 30 gr smjör
  • 1 stk. laukur saxaður
  • 1 stk. paprika söxuð
  • 2 tsk karrý
  • 1 ½ dl vatn
  • 100 gr rjómaostur (eða eftir smekk)
  • Salt

 

Kjötið er skorið í gúllasbita og brúnað í smjörinu ásamt papriku, lauk og karrýdufti í u.þ.b. 10 mín, svo sett í eldfast mót og vatnið sett yfir og saltað. Bakið í 1 ½ klst., blandið svo rjómaostinum út í restina. Þetta borðum við með hrísgrjónum og brauði. Það er líka ljómandi gott að hafa ferskt salat með báðum þessum réttum.

Verði ykkur að góðu!

Fleiri fréttir