Ótrúleg orka leysist úr læðingi
Linda Björk Ævarsdóttir hefur alltaf haft unun af dansi en hún hefur verið að kenna Zumba á Blönduósi, Skagaströnd, Hvammstanga, í Víðihlíð í Húnaþingi vestra og nú í Ljósheimum í Skagafirði. Í Feyki sem kom út í dag er Linda Björk spurð út í dansinn og búskapinn en hún og Kristján Steinar Kristjánsson, eiginmaður hennar, reka kúabú á Steinnýjarstöðum í Skagabyggð.
Í viðtalinu kemur m.a. fram að ýmislegt hafa breyst við tilkomu mjalta róbóts sem hjónin festu kaup á fyrir rétt rúmu ári.
„Maður er ekki eins bundinn við ákveðinn tíma við fjósverkin og hægt að hagræða því eftir öðrum verkum,“ segir hún en nú gefst henni tækifæri til að sinna áhugamáli sínu af meiri krafti - dansinum.
„Í Zumba nýtur maður tónlistarinnar í botn og er ótrúleg orka sem leysist úr læðingi við að dansa, maður bókstaflega gleymir öllu öðru um stund.“
Viðtalið við Lindu Björk má sjá í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.