„Ótrúlegt hverju er hægt að áorka með jákvæðu viðhorfi“

Farskóli Norðurlands vestra mun bjóða upp á Dale Carnegie námskeið dagana 23.-25. maí næstkomandi. Anna Steinsen mun sjá um þjálfunina á námskeiðinu en hún hefur séð um Dale Carnegie þjálfun frá því í ársbyrjun 2004.

Anna er búsett í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum, Jóni Halldórssyni, og saman eiga þau fjögur börn á aldrinum 5 til 20 ára. Anna er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði, er heilsumarkþjálfi og þjálfari og master trainer hjá Dale Carnegie.

Aðspurð hvers vegna fólk ætti að sækja sér Dale Carnegie þjálfun segir Anna námskeiðið hjálpa öllum þeim sem vilji auka við árangur í daglegu lífi. Námskeiðið sé ekkert öðruvísi en líkamsrækt, en með því að styrkja okkur sjálf innan frá, þá aukum við árangur í einkalífi og starfi.

-Námskeiðið gengur út á það að efla sig á alla kanta. Á námskeiðinu ertu að efla sjálfstraustið þitt. Gott og heilbrigt sjálfstraust er lykill að vellíðan og árangri í lífinu. Einnig gengur námskeiðið út á það að bæta sig í mannlegum samskiptum, eiga auðveldara með að tala við fólk, leysa deilur, spjalla við börnin og hvetja samstarfsfólkið. Stór hluti af námskeiðinu er að eiga auðveldara með að tjá sig, til dæmis á fundum eða að geta haldið ræðu. Að lokum styrkjum við leiðtogahæfnina og aukum jákvætt viðhorf. Með jákvæðu viðhorfi er ótrúlegt hverju er hægt að áorka, segir Anna.

Anna segir að 98% af öllum þeim sem hafa komið á námskeiðið segja að námskeiðið hafi staðist væntingar eða farið fram úr öllum vætningum. -Námskeiðið skilar tilætluðum árangri hjá langflestum. Til þess þó að ná árangri á námskeiðinu þá verður viðhorfið að vera í lagi, mæta með opinn huga og leggja sig fram, bætir Anna við að lokum.

Fleiri fréttir