Óveður í Blönduhlíð
Hálka og skafrenningur er á Þverárfjalli og þæfingsfærð yst á Siglufjarðarvegi en annars eru flestar aðalleiðir á Norðvesturlandi greiðfærar. Óveður er í Blönduhlíð og ófært á Öxnadalsheiði.
Austlæg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, 13-20 m/s og skýjað, hvassast og stöku él á annesjum. Norðlægari á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðaustan 13-18 m/s, en 18-25 SA-lands. Snjókoma eða slydda á A-verðu landinu, él NV-til, en annars skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig SA-lands, en frost annars 0 til 7 stig, kaldast á N-landi.
Á laugardag:
Norðaustan 10-15 m/s, en hægari SA-lands. Él eða dálítil snjókoma N- og A-lands, en annars bjartviðri. Frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan 10-18 m/s, hvassast NV-til. Snjókoma eða él N- og A-lands, en annars bjartviðri. Kólnandi veður.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Norðlæg átt og dálítil él N- og A-til, en annars léttskýjað. Harðnandi frost um land allt.