Óveður í Langadal og á Þverárfjallsvegi
Vegir á Norðurlandi vestra eru að mestu auðir en þó er krap í Langadal og óveður. Snjóþekja er einnig á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Þverárfjalli en þar er líka óveður.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðan 18-23 m/s og snjókoma í dag, samkvæmt spá Veðurstofunnar, en dregur úr vindi og rofar til í kvöld, norðan 5-10 og dálítil él á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Hæg norðlæg átt og víða dálítil él, en úrkomulítið V-lands. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins.
Á miðvikudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt léttskýjað, en sums staðar él úti við sjávarsíðuna. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við S- og V-ströndina.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg átt og þykknar upp, en bjartviðri A-lands framan af degi. Hiti 0 til 5 stig, en frost 1 til 6 stig á N- og A-landi.
Á föstudag:
Suðvestanátt og lítilsháttar væta, en bjartviðri A-lands. Hlýnandi í bili.
Á laugardag:
Suðvestanátt og skúrir eða él, en léttskýjað A-lands. Fremur milt veður.