Óveður og stórhríð víða á Norðurlandi vestra
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Óveður er í Húnavatnssýslum og á Vatnsskarði. Hálkublettir og stórhríð er á Skagastrandavegi. Ófært og stórhríð er á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 15-25 m/s, hvassast á annesjum. Snjókoma og hiti um frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en úrkomulítið syðra. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en hiti 0 til 5 stig að deginum SA-til á landinu.
Á laugardag:
Hvöss norðanátt austast á landinu, annars mun hægari vindur. Él fyrir norðan og austan, en léttskýjað SV-lands. Kólnandi veður.
Á sunnudag:
Hæg breytileg átt og bjartviðri, en vestan strekkingur og él nyrst. Kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt með snjókomu S- og V-lands um kvöldið.
Á mánudag:
Suðvestanátt og léttir til NA-lands, annars skúrir eða él. Hiti 0 til 5 stig, en kringum frostmark fyrir norðan.
Á þriðjudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og stöku él. Kólnandi í bili.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.