Óvissa um þróunarverkefni

Á vef Húna er sagt frá því að fjölmörg tilraunaverkefni um land allt séu í óvissu eða hafa jafnvel verið slegin út af borðinu með ákvörðun ESB um að veita ekki frekari IPA-styrki til verkefna hér á landi. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra  voru aðalumsækjandi í einu verkefni sem hafði fengið vilyrði um IPA-styrk að upphæð allt að 490 þúsund evrum og voru meðumsækjandi í einu öðru sem hafði komist á það stig.

 

Aðalverkefni SSNV snerist um atvinnuuppbyggingu og menntun fyrir ungt fólk á svæðinu en í heildina tóku SSNV þátt í fjórum umsóknum. Katrín María Andrésdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, segir í Fréttablaðinu í dag að þar á bæ sé ekki litið á málið sem tapað fé, enda hafi enn átt eftir að semja við ESB um lokaútfærslu verkefnanna og framlag. Þá sé mögulegt að halda áfram með marga þætti sem verkefnið tók til.

"Ég veit ekki til þess að nokkur hafi sett þetta inn í fjárhagsáætlanir sem fundið fé á næsta ári þannig að það er ekki tapað fé. Verkefnið sem við byggðum upp er í mörgum hlutum sem hægt er að halda áfram með með öðrum hætti." Hún bætir því við að þeir sem eru vanir því að sækja um styrki sem þessa ættu að vera vanir því að fá bæði höfnun og samþykki. "Það er enginn hérna sem lítur á vinnuna við umsóknina eða hugsanlegan styrk sem einhvers konar tap heldur er þetta ferli sem við höfum lært af. Það er núna statt á ákveðnum stað og maður getur farið í margar áttir með þau verkefni sem við höfum verið að vinna með. Upplýsingaöflun og greiningar- og hugmyndavinna hafa þegar nýst okkur við önnur verkefni. Við höfum ekki gengið þessa götu til einskis."

Til stóð að veita allt að 3,5 milljarða til ýmissa verkefna í ár og á því næsta en Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti stjórnvöldum að ekki yrði samið um fleiri IPA-verkefni að óbreyttu eftir að hlé var gert á aðildarumræðum, þar sem það sé í raun skilyrði fyrir aðstoð að viðtökulandið stefni að inngöngu í sambandið.

Hluti af fyrirhugaðri IPA-aðstoð var að styðja við tilraunaverkefni á sviði atvinnuþróunar- og byggðamála annars vegar og velferðar- og vinnumarkaðsmála hins vegar. Alls átti að verja um átta milljónum evra til slíkra verkefna.

Fleiri fréttir