Pálínuboð og listamannaspjall

September er síðasti mánuður verkefnisins „Summer We Go Puplic“ sem staðið hefur yfir í Nes listamiðstöð á Skagaströnd í sumar. Ennþá eru nokkrir viðburðir eftir sem munu eiga sér stað utandyra, á opinberum stöðum úti í samfélaginu, eða með því að kynna listina á nýjum stöðu og í nýju samhengi.

Á laugardaginn kl. 19:30 verður Pálínuboð heima hjá Melody forstöðukonu að Röðulfelli (Fellsbraut 21) á Skagaströnd. Á miðvikudaginn kl 19:00 verður svo listamannaspjall í Kántrýbæ.

Fleiri fréttir