Páll frá Jaðri varar við óveðri
Páll Jónsson, áður bóndi á Jaðri í Skagafirði, spáir norðvestan hvelli norðanlands fyrstu dagana í september. Fyrir nokkru varaði hann bændur og fjallskilastjóra í Skagafirði við, hvatti þá til að flýta göngum og taka fé inn í hús.
Páll sem fer oft á miðilsfundi og er mjög berdreyminn telur að hvellurinn verði viku fyrr á ferðinni en sá sem reið yfir Norðurland í fyrra, með tilheyrandi fjárskaða og búsifjum fyrir bændur.
„Ég hef fundið þetta mjög sterkt og fengið fleiri en ein skilaboð um þetta í sumar,“ segir Páll, en segir jafnframt að þetta yfirvofandi óveður hafi ekki komið fram í draumum. „Ég var vantrúaður á þetta en síðan var mér sagt hinum megin frá að þetta myndi gerast. Þetta leggst illa í mig,“ er haft eftir Páli í Morgunblaðinu í dag.