Píratar vilja hjálpa

-Það er ekki rétt eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að Píratar vilji ekki hjálpa lánsveðshópnum. Hið rétta er að við viljum ekki senda þennan hóp í 110% leiðréttinguna, því árangur leiðarinnar hefur verið umdeildur og ekki hjálpað öllum sem hafa farið þá leið og þurft sárlega á hjálp að halda, segir í tilkynningu Pírata til fjölmiðla nú í morgun.

Píratar segjast einmitt vilja að lánsveðshópnum verði hjálpað á sannarlega árangurríkan máta en ekki sendur í áframhaldandi þrautargöngur með því að senda þá í leið sem hentar ekki öllum og sumir hafa þurft að fara ítrekað í.

-Meðfylgjandi er svar okkar til fréttamannsins Lóu Pind Aldísardóttur, en okkur er fyrirmunað að skilja hvernig hægt var að setja það fram í frétt að Píratar vilji ekki hjálpa lánsveðshópnum útfrá svari okkar.

1)      Ætlar flokkurinn að tryggja lánsveðshópnum 110% leiðina?
-          Ef svo er, hvernig?

Nei, vegna þess að hún hefur þegar verið farin og getur ekki orðið að langtímalausn sem er notuð ítrekað. Lausnir á vandamálum lántakenda þurfa að vera óháðar aðstöðu og sannanlega árangursríkar.

Þá vilja Píratar taka það fram að þingmaðurinn og Píratinn Birgitta Jónsdóttir hefur barist fyrir því að þessum hópi verði hjálpað á þessu kjörtímabili og mun ásamt öðrum Pírötum halda því áfram ef þau fá umboð til þess.

Fleiri fréttir