Pókerklúbburinn á Blönduósi að hefja nýtt tímabil
Nýtt tímabil er að hefjast hjá pókerklúbbnum PÓS á Blönduósi en klúbburinn hefur verið starfandi í 1 ár og mætingin ávallt verið góð. Klúbburinn stendur fyrir mótaröð fram á vor þar sem alls fara fram 13 mót en 8 bestu mótin gilda hjá hverjum einstaklingi. Til stendur að breyta út af vananum af og til og spilaður Knockout, 6-max og Shootout. Nýtt pókerborð er að bætast við í búnað klúbbsins og verða þau þá orðin 3 talsins.
Allir 18 ára og eldri geta komið og verið með í klúbbnum og geta áhugasamir sett sig í samband við einhvern í klúbbnum eins og Kidda Blö, Brynjar, Egil, Val eða Tryggva eða að mæta bara eitt mánudagskvöldið kl. 19:45 í Sjálfstæðishúsið á Blönduósi. Nánari upplýsingar, dagskrá, úrslit eldri móta og fleira er að finna á heimasíðunni kjalfell.is/pokerfelag
