Pósturinn sigraði Firmakeppni Hvatar í knattspyrnu 2012
Lið Póstsins sigraði í Firmakeppni Hvatar árið 2012 með því að leggja lið Íþróttamiðstöðvarinnar naumlega í úrslitaleik mótsins 3-2. Átta lið voru skráð til leiks að þessu sinni og samkvæmt heimasíðu Hvatar gekk mótið í heildina mjög vel fyrir sig og lögðu fjölmargir leið sína í íþróttahúsið í gær.
Í leiknum um 3. sætið var það Bílaverkstæði Óla sem lagði lið Sveitarinnar í hörkuleik. „Spútnik lið mótsins var án efa lið Vilkó sem stóð sig gríðarlega vel en það lið var eingöngu skipað leikmönnum úr yngri flokkum félagsins,“ segir á heimasíðunni.
Lið Póstsins var vel að sigrinum komið samkvæmt heimasíðu Hvatar en þess má geta að eigandi liðsins og framkvæmdastjóri er Gunnar Tryggvi Halldórsson. Lið Póstsins hlaut því Firmakeppnisbikarinn í ár og fékk liðið afhendan veglegan farandbikar til varðveislu í eitt ár. Að auki fengu leikmenn sigurliðsins verðlaunapening, „hacky sack“ bolta og súkkulaðidýfu frá Vilkó.