Potluck í Nes listamiðstöð
Nes Listamiðstöð á Skagaströnd heldur „potluck“, eða pálínuboð, miðvikudaginn 11. júlí kl. 19. Í hverjum mánuði er haldin veisla þar sem listamenn og gestir koma saman og slá upp hlaðborði og eru allir boðnir velkomnir.
„Vinsamlegast taktu með þér rétt á hlaðborðið,“ segir í fréttatilkynningu en hver matreiðir einn rétt og tekur með sér og svo eiga allir skemmtilega kvöldstund saman.
Þeir listamenn sem dvelja við listamiðstöðina eru:
Listamenn sem bættust í hópinn í júlí:
1- Danielle Rante - BNA
2 - Lea Vidakovic og Viktor Gal - Serbía
3 - Montana Torrey - BNA
4 - Elke Schweigart - Þýskaland
5 - Bodil Steinsund - Noregur
(myndlistarmenn)
Samvinnuhópur – „Det Perifere Selskab“:
6 - Sabine Popp - Noregur
7 - Morten Priesholm - Danmörk
8 - Malene og Lauritz Pedersen - Danmörk
9 - Katrine Faber - Danmörk
10 -Askel Striim - Danmörk
Listamenn sem hafa dvalið við listamiðstöðina frá því í júní.
11 - Dominic Hoey -Nýja Sjáland - rithöfundur og tónlist -
12 - Pat Byrne - Írland - málari / teikna