Potluck í Nes listamiðstöð á morgun

Nes listamiðstöð býður í svokallað „potluck“ miðvikudaginn 24. október, kl. 18:30. Þar gefst gullið tækifæri til þess að hitta þá listamenn sem dvelja á Skagaströnd í október, sjá listsköpun þeirra og hvernig umhverfið hefur áhrif á verk þeirra.

Potluck eða Pálínuboð er skilgreint sem samkoma þar sem gestirnir koma með mat og leggja til á sameiginlegt hlaðborð.

Í fréttatilkynngingu frá listamiðstöðinni kemur fram að potluckið sé haldið óvenju seint þennan mánuðinn vegna þess að listamenn og nokkrir aðrir bæjarbúar voru á faraldsfæti í byrjun mánaðarins.

Þeir listamenn sem nú eru í listamiðstöðinni að Fjörubraut 8, Skagaströnd, eru:

 

Justy Phillips Australia www.relatedprojects.net
Julia Wellner Switzerland www.juliawellner.com
Catherine Lauigan USA www.catlauigan.com
Sarah Bielecki UK
Andrea Clinton USA Http://andreaclinton.blogspot.com
Sinéad Bhreathnach-Cashell Ireland www.uncertainremains.wordpress.com
Emily O’Connor Australia
Cathal Duane Ireland www.cargocollective.com/duane
Gemma Messih Australia www.gemmamessih.com
Kristine Roan USA www.kristineroan.com

Fleiri fréttir