Ráðning skólameistara enn óráðin

Umsækjendurnir sjö um stöðu skólameistara FNV þurfa enn að bíða í óvissu um framtíð sína en samkvæmt upplýsingum sem Feykir fékk frá aðstoðarmanni starfandi menntamálaráðherra er enn verið að fara yfir þær umsóknir sem bárust. Nýr skólameistari átti samkvæmt auglýsingu að hefja störf þann 1. ágús sl.

 Umsækjendur um stöðuna eru:

• Aðalheiður Dröfn Eggertsdóttir, deildarstjóri,

• Geir Hólmarsson, meistaranemi,

• Helgi Einar Baldursson, framhaldsskólakennari,

• Ingileif Oddsdóttir, náms- og starfsráðgjafi,

• Jóhannes Ágústsson, fyrrverandi skólastjóri,

• Nína Þóra Rafnsdóttir, framhaldsskólakennari og

• Þorkell Vilhelm Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára og átti því eins og áður segir að vera lokið fyrir 1. ágúst sl.

Fleiri fréttir