Ráðstefna um N-Evrópska sauðfjárstofninn
Ráðstefna um Norður-Evrópska sauðfjárstofninn (stuttrófukyn) verður haldin á Blönduósi á vegum Textílseturs Íslands og samstarfsaðila þess í september nk. Síðan 2011 hefur þessi ráðstefna verið haldin víðs vegar á Norður-Atlantshafslöndunum. Þema ráðstefnunnar verður textíll og ullarvinnsla. Frá þessu er sagt á vef Þekkingarsetursins.
Fulltrúar frá aðildarlöndum ráðstefnunnar munu flytja fyrirlestra, auk þess verða nokkrar vísindaferðir í fyrirtæki tengd sauðfjárrækt og úrvinnslu afurða.
Ráðstefnan mun fara fram 4. - 8. september 2014.
Á dagskrá verður eftirfarandi:
· Fyrirlesarar frá Noregi, Íslandi, Grænlandi, Orkney, Hjaltlands-, Hebrides- og Færeyjum ræða um fjölbreytt mál allt frá sauðfjárkyni til úrvinnslu á sauðfjárafurðum t.d. ullarvinnslu.
· Handverkssýningar verða á staðnum. Þær gefa glöggva mynd af þeim fjölbreytileika sem sauðfjárafurðir búa yfir þegar kemur að listaverkum.
· Heimsóknir verða í Ístex í Mosfellsbæ, Ullarselið á Hvanneyri og Þingborg. Í Húnavatnssýslu verður farið í réttir, a.m.k. á eitt sauðfjárbýli, að Þingeyrum og skoðum þá víðfrægu kirkju. Í Skagafirði verður komið við í Gestastofu Sútarans og Kakalaskála.
Ítarlegri dagskrá verður birt þegar hún liggur endanlega fyrir. Ráðstefnan hefur þegar dregið að sér mikla athygli og því eru allir hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Verð 40.000.- innifalið er ráðstefnugögn, allar ferðir, morgunkaffi, einn hádegisverður og hátíðarkvöldverður.
Nánari upplýsingar: woolconference2014@gmail.com og www.textilsetur.com