Rætt um framtíð flugsins
Í dag var haldinn fundur á Kaffi Krók þar sem framtíð áætlunarflugs til Sauðárkróks var rædd. Þar voru mættir fulltrúar Svf. Skagafjarðar, Flugfélagsins Ernis auk annarra hagsmunaaðila á svæðinu.
Fram kom hjá flugrekstraraðilum að ekki væri rekstrargrundvöllur fyrir því að halda uppi flugáætlunum til Sauðárkróks án aðkomu ríkisins í formi styrkja en aðeins um eina og hálfa milljón króna á mánuði eða um 15-20 m.kr. á ári vantar til að dæmið gangi upp. Minni sætanýting auk meiri skatttekju ríkisvaldsins gerir það einnig að verkum að erfitt er um vik fyrir flugfélagið að halda áfram á sömu braut. Óskir heimamanna voru þær helstar á fundinum að flugið héldi áfram með aukinni þjónustu við þá sem þyrftu að skreppa daglangt í höfuðborgina með því að fyrr verði flogið á morgnana og hægt verði að komast heim að dagsverki loknu. Einnig kom fram að betur má markaðssetja flugið hvað varðar ferðaþjónustuaðila svæðisins og eru þar drjúg sóknartækifæri.
Bjarni Jónsson sveitarstjórnarfulltrúi segir að því verði fylgt eftir sem kom fram á fundinum við innanríkisráðherra en fundur verður haldinn með honum í næstu viku. Bjarni segist bjartsýnn á að það takist að tryggja áframhaldandi flug til Sauðárkróks með samningum við stjórnvöld og aukinni nýtingu á fluginu m.a. með því að finna hentugar tímasetningar. Einnig telur hann það samræmast samgönguáætlun á Norðurlandi vestra sem verið er að vinna að hjá SSNV að halda úti flugi til Sauðárkróks og þar með til Norðvestur landshlutans.