Rætur er nýtt byggðasamlag um þjónustu við fatlaða
Á stofnfundi nýs byggðarsamlags sem haldin var í dag 29.janúar 2014 á Sauðárkróki, undirrituðu fulltrúar níu sveitarfélaga samþykktir nýs byggðarsamlags sem fengið hefur nafnið Rætur bs.
Tilgangur samlagsins er að fara með málefni fatlaðs fólks á vestanverðu Norðurlandi. Aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins eru; Akrahreppur, Blönduósbær, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.
Verkefni byggðasamlagsins var áður rekið af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eða allt frá árinu 1999. Stofnun nýs byggðasamlags mun ekki hafa áhrif á framkvæmd þjónustu við fatlað fólk á starfssvæðinu en mun skerpa enn frekar á ábyrgð og samstarfi sveitarfélagana við veitingu þjónustu við fatlað fólk.
Ágúst Þór Bragason, formaður stjórnar Róta, sagði í stuttu spjalli við Feykir að á bak við hið nýja byggðasamlag væri 11-12 þúsund íbúar. Flest sveitarfélaganna sem aðild eiga að byggðasamlaginu hafi rekið þennan málaflokk frá 1999, löngu áður en hann varð að lögbundnu verkefni sveitarfélaga árið 2011. Fyrir þann tíma hefðu aðeins örfá sveitarfélög haft málefni fatlaðra á sinni könnu, en frá því að þetta skref var stigið á Norðurland vestra hefur málaflokkurinn verið rekinn með farsælum hætti og önnur sveitarfélög gegnum tíðina horft til þess.
Í stjórn byggðasamlagsins sitja; Ágúst Þór Bragason Blönduósbæ, Ásta Björg Pálmadóttir Sveitarfélaginu Skagafirði, Ingvar Erlingsson Fjallabyggð, Skúli Þórðarson Húnaþingi vestra og Svanfríður Inga Jónasdóttir Dalvíkurbyggð.