Rán á Skagaströnd 1686 - sögufundur á laugardaginn

Sögufélagið Húnvetningur á sterk tengsl í byggðinni við austanverðan Húnaflóa, þar sem Magnús fræðimaður á Syðra-Hóli var einn af stofnendum félagsins og ritaði marga snjalla þætti úr þeim sveitum. Síðar kom að félaginu öflugur formaður af Skagaströnd, Elínborg Jónsdóttir, á árunum sem unnið var að útgáfu á Ættum Austur-Húnvetninga.

Nú verður næsti fundur félagsins á Skagaströnd laugardaginn 24. mars kl. 15:00 og þar mun Þorlákur Axel Jónsson sagnfræðingur segja frá ráni Hollendinga á Skagaströnd 1686. Grafist er fyrir um ástæður þessa atburðar, farið yfir samskipti Hollendinga og Íslendinga á 17. öld og skoðað hvernig verslunarstaður á borð við Höfðakaupstað birtist í tiltækum hollenskum heimildum. Fjallað verður einnig um hvernig verslunarstaður Höfði var og þýðing hans fyrir íbúa svæðisins verður krufin. Sýndar verða myndir með skjávarpa og gestum gefst tækifæri til þess að bera fram fyrirspurnir.

Fyrirlesarinn, Þorlákur Axel, er kennari við Menntaskólann á Akureyri. Hann er stúdent frá MA 1983, tók BA-próf við HÍ 1987 og lauk cand. mag. prófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1994. Ritgerð hans heitir: Statsmagt og byutvikling í Reykjavík 1750-1850. Fræðasvið Þorláks Axels er Íslandssaga, bæjasaga og saga ríkisvalds.

Þessi fundur sögufélagsins verður á Skagaströnd eins og áður sagði, hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands að Einbúastíg 2.

Fyrirlestur Þorláks Axels hefst kl. 15, síðar verður kaffi í boði og aðalfundur félagsins að því loknu. Athuga seinkun á fundartíma.

Fleiri fréttir