Ratsjáin á Norðurlandi vestra

Eitt af markmiðum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í íslensku atvinnulífi með virkri þátttöku í rannsóknarverkefnum og stuðningi við frumkvöðla og fyrirtæki. Ratsjáin er eitt þeirra verkefna og er ætlað stjórnendum ferðaþjónustufyrirtækja til að efla þekkingu og hæfni þeirra á sviði fyrirtækjareksturs. Því er ætlað að ná til þeirra fyrirtækja sem eru að gera góða hluti í dag en vilja efla sig enn meira í ýmsum rekstrarþáttum.

Vorið 2019 verður Ratsjáin á Norðurlandi vestra og eru starfandi ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu hvött til að sækja um þátttöku. Einungis sex fyrirtæki verða valin til þátttöku að umsóknarfresti loknum þann 3. febrúar.

Með þátttöku sinni fá stjórnendur þjálfun og þekkingu sem snýr að betri miðlun upplýsinga, aukinni hæfni í greiningu á rekstri fyrirtækisins og úrbótaskýrslu með tillögum að nauðsynlegum aðgerðum. Stefnt er að því að gæði, fagmennska og ábyrg stjórnun verði hluti af stefnumótunarferli hvers fyrirtækis.

Verkefnið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Íslenska ferðaklasans, sem hvor um sig leggur til sérfræðinga til verkefnisins og er verkefnið unnið með stuðningi af Byggðaáætlun. Upplýsingar um verkefnið má finna vefsíðu verkefnisins á www.ratsjain.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir