Rauðar tölur í kortunum þessa vikuna
Það styttist í 1. apríl og veðurspáin er loksins að verða þeim sem þrá vorið hagstæðari. Spáin næsta sólahringinn gerir ráð fyrir norðaustan 5-10 m/s á annesjum, en annars hægari vestlæg eða breytileg átt. Skýjað og lítilsháttar slydda. Hiti 0 til 4 stig.
Hvað vikuna varðar þá eru rauðar tölur í kortunum fram á laugardag og ljóst að þessi hvíti ætti að láta undan.