Reiðkennsla hestamannafélagsins Neista

Pétur Örn Sveinsson og Heiðrún Ósk Eymundsdóttir í Saurbæ munu sjá um reiðkennsluna hjá hestamannafélaginu Neista í vetur. Þau munu byrja með bóklega tíma í Knapamerkjum 1,2,3 og 5 dagana 14. og 16. janúar. Áætlað er að verklegir tímar hefjist viku síðar. Ekki var næg þátttaka í Knapamerki 4. 

Reiðnámskeið fyrir börn munu hefjast í lok mánaðar.

Þátttakendur á námskeiðum munu fá tímaskipulag námskeiða sent í tölvupósti þegar nær dregur en öll kennsla mun fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum.

Eins og áður er sérstök áhersla lögð á að niðurgreiða námskeið fyrir börn og unglinga. Kostnaður fyrir hvern og einn mun liggja fyrir við námskeiðslok.

Neisti.net segir frá þessu.

Fleiri fréttir