Reikna með að slátra um 100.000 fjár
Sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum á Blönduósi hefur gengið vel það sem af er sláturtíðar, að því er haft er eftir Gunnari Tr. Halldórssyni, framkvæmdastjóra félagsins, á vefnum huni.is.
Gert er ráð fyrir að slátrað verði út þennan mánuð og að slátrað verði um 100 þúsund fjár sem er svipað og verið hefur undanfarin ár. Gunnar segir á huna.is að sala afurða félagsins sé meiri í ár en hún var í fyrra og að starfsmenn séu að „drukkna í verkefnum.“
Um 160 manns vinna um þessar mundir hjá SAH Afurðum og hafa starfsmenn aldrei verið fleiri. Af þessum fjölda eru um 100 útlendir starfsmenn. Vel gekk að ráða starfsfólk í sláturhúsið í haust en um 90% af því kemur ár eftir ár. Stöðugildum hefur fjölgað í sauðfjárslátruninni þar sem nú er aftur farið að salta gærur á Blönduósi sem hefur ekki verið gert undanfarin ár. Söltunin fer fram í húsnæði félagsins við Hafnarbraut en þar er einnig gistiaðstaða fyrir starfsmenn.
„Þess má geta að vambir eru seldar í verslun SAH Afurða á Blönduósi „og þá er verið að tala um alvöru vambir,“ segir ennfremur á huni.is. Í sláturtíðinni í fyrra heyrðust háværar óánægjuraddir neytenda með það að ekki væri hægt að fá alvöru vambir í verslunum. SAH Afurðir brugðust við þessum óskum hratt og vel og undir lok sláturtíðar í fyrra var hægt að fá vambir frá Blönduósi á tilteknum sláturmörkuðum Krónunnar. Gunnar segist í samtali við huna.is ekki vita hvort að vambir félagsins rati í verslanir Krónunnar að þessu sinni en í það minnsta verður hægt að kaupa þær í verslun SAH Afurða á Blönduósi.