Rekstrartekjur hærri en var ráðgert
Rekstrartekjur Blönduósbæjar árið 2011 námu 662 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en það er nokkuð hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þetta kom fram á 20. fundi bæjarstjórnar Blönduóssbæjar sem haldinn var í gær.
Tekjur samstæðunnar hækka um 42 milljónir á milli ára, sem gerir um 7% hækkun tekna en útgjöld hækka innan við 0,5% eða um 2,5 milljónir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 34,8 milljónir kr.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var neikvæð um 52 milljón kr. og er 12 milljónum kr. betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skuldir og skuldbindingar samtals eru 1.181.959 þús. kr. árið 2011 en voru 1.180.172 þús. kr. árið á undan. Ný tekin langtímalán voru 95 milljónir kr. og afborganir langtímalána ársins 2011 voru 74 milljónir kr. Síðustu áramót var eigið fé samstæðunnar um 608.171 þús. kr.
„Niðurstaða ársins er því betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og skýrt merki um traustan rekstur Blönduóssbæjar. Bæjarstjórn vill þakka starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góð störf á liðnu ári,“ segir í fundargerð.
Bókunin var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum og sömu söguna er að segja um framlagða ársreikninga Blönduósbæjar fyrir árið 2011 sem voru einnig samþykktir samhljóða.