Rekstur Blönduósbæjar á áætlun
Húni.is segir frá því að rekstur Blönduósbæjar fyrstu sjö mánuði ársins gengur samkvæmt áætlun. Bókfærðar tekjur á tímabilinu nema um 396,5 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir tekjum að fjárhæð 640 milljónum króna fyrir allt árið. Bókuð útgjöld tímabilsins nema um 333,2 milljónum króna en fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir útgjöldum upp á 580,6 milljónum króna.
Rekstrarniðurstaða fyrstu sjö mánuði ársins er jákvæð um sem nemur 62,2 milljónum króna en fjárhagsáætlun án afskrifta, verðbóta og söluhagnaðar gerir ráð fyrir að tekjur nemi 59,4 milljón króna umfram gjöld.
Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í dag. Þar kom einnig fram að fjárfestingar fyrstu sjö mánuði ársins námu um 2,6 milljónum króna en gert er ráð fyrir um 7 milljónum króna í fjárfestingar á árinu.